Hugsanleg minnihlutastjórn VG

Mörg mál bar á góma á Sjálfstæðisþinginu í dag enda ýmislegt í deiglunni. Eftir að ályktunin um Evrópusambandsaðildina var samþykkt, VG höfðu vísað svipaðri ályktun til framkvæmdaráðs og Samfylkingin lýst afstöðu sinni og ákvörðun um að halda áfram á sinni braut, telja ýmsir að skárri kost sé vart hægt að finna en þann að VG myndi minnihlutastjórn sem varin verði af Sjálfstæðisflokki og framsóknarflokki. Í samningum um slíka stjórn muni bæði Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn fá ýmsum málum framgengt, VG fái komið ákveðnum áherslumálum gegnum þingið en umfram allt - aðildarumræðurnar verði dregnar til baka og Samfylkingin sitji eftir sleikjandi sár sín - bitsár sem hún hefur sjálf veitt sér með því að glefsa í sjálfa sig, eins og einn heimildarmaðurinn orðaði það svo kurteislega.
mbl.is Óþarfi að sundra flokksmönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hækkandi farvegur Skaftár veldur áhyggjum

Í dag var ég á ferð um Skaftárhrepp og hitti ýmsa að máli. Einn viðmælandi greindi frá ýmsum breytingum sem ættu sér nú stað í næsta nágrenni Kirkjubæjarklausturs. Sagði hann að miklu jökulvatni væri nú veitt í skaftá og hækkaði farvegur hennar stöðugt sem þýðir um leið að hann grynnkar og minna borð verður fyrir báru í Skaftárhlaupum. Greindi hann m.a. frá því að í Skaftárhlaupinu í fyrra hefði hrönnin náð upp á brúarhandriðið.

Þessi viðmælandi taldi ákveðið andvaraleysi ríkja hjá hreppsyfirvöldum og vegagerðinni vegna þessa ástands em væri að skapast. Engar ráðstafanir virtust hafa verið gerðar til þess að bregðast við yfirvofandi flóðum og héldi fram sem horfði færi áin að flæmast um nágrennið eins og áður.


Bloggfærslur 26. júní 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband