Ís-land - fjölbreytileiki og gæði í fyrirrúmi

Í fyrradag bárust þau tíðindi að ný ísbúð hefði verið opnuð í Suðurveri í Reykjavík. Við hjónin vorum á ferðinni í gær og Hringur Árnason, sonarsonur á 16. ári, 183 sentimetrar á hæð, var með okkur.

Þar sem leiðin lá framhjá Suðurveri var sjálfsagt að líta þarna við enda ég í stjórn Alþjóða rjómaísgæðarannsóknarstofnunarinnar og félagi í Maoíska ísklúbbnum. Auk þess - og það skiptir mestu máli - erum við Elín og Hringur áhugafólk um góðan ís.

Þegar inn í ísbúðina kom gaf á að líta. Kjörís og ýmsar tegundir af rjómaís frá Holtseli. Fleiri ístegundir voru þarna, þar á meðal jógúrt- og skyrís.

Holtselsísinn er rjómaís og mun dýrari en kjörísinn. En gæðin vega svo sannarlega upp á móti verðinu. Ísinn var hreint og beint unaðslegur. Áferðin er svo mjúk að hann (ísinn) gælir við munnholið.

Frumrannsóknir benda til að framleiðslan sé nær óaðfinnanleg. Helst mættu þeir Holtselsbændur draga ögn úr sykri.

Ís-landi veitir kona forstöðu og svo er einnig um aðra ísbúð sem mig minnir að sé á Rauðalæk. Þjónustu þeirra beggja einkennir alúð og áhugi á starfinu.

Nú hlýtur það verkefni að bíða Maoíska ísklúbbsins að halda stjórnarfund og kanna gæði íssins. Verður vonandi hægt að hrinda því í framkvæmd þegar Emil Bóasson tyllir næst fæti sínum á íslenska grund.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eygló

Hefði hún e.t.v. átt að nefna búðina Safe-Ice?   Neeeh.

Eygló, 8.2.2010 kl. 14:23

2 identicon

Mæti í rjómasínn þegar rennur af lönguvitlsysu hrunflokka í icesave.

Emil (IP-tala skráð) 10.2.2010 kl. 00:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband