Veruleikafirrtur fjármálaráðherra og fátækir Íslendingar

Loksins leit einhvers konar framfærslustaðall dagsins ljós frá Hagstofu Íslands. Þar kemur í ljós það, sem lengi var vitað og Öryrkjabandalag Íslands hamraði á aftur og aftur: fjöldi fólks á Íslenandi býr við fátækt - fátækt er meiri hér á landi en annars staðar á Norðurlöndum.

Orð Steingríms Sigfússonar í fréttum sjónvarpsins í gærkvöld um að þessar upplýsingar skytu skökku við það sem hann hefði lesið um ástandið á Norðurlöndum, fóru fyrir brjóstið á mörgum. Steingrímur hefur sjálfsagt ekki þurft að lepja dauðann úr skel svo að árum eða áratugum skiptir og löng seta hans á Alþingi hefur firrt hann veruleikaskyni. Harpa Njáls, félagsfræðingur, birti ítarlegar uplýsingar um fátækt á Íslandi í upphafi þessarar aldar og þáverandi ríkisstjórn fór hamförum í þeirri viðleitni sinni að hrekja röksemdir hennar.

Mörgum fannst sem Samfylkingin færi vel af stað þegar hún hóf samstjórn með Sjálfstæðisflokknum árið 2007 og ýmsir bundu vonir við að hún lagfærði skemmdirnar á velferðarkerfinu sem Framsókn og Sjálfstæðisflokkur höfðu framið í stjórnartíð flokkanna. En Adam var ekki lengi í Paradís. Bankarnir hrundu og þá varð fangaráð ríkisstjórnarinnar eins og annarra ríkisstjórna fyrr og síðar að seilast í vasa öryrkja, aldraðra og lágt launaðra Íslendinga.

Nokkur hópur fólks hefur efnast að undanförnu og sumir eru ríkari en aðrir vegna þess að þeir nutu aðstoðar bankanna til þess að koma fé sínu úr landi. Þar á meðal er roskinn faðir formanns stjórnarandstöðuflokks á Alþingi. Hefurr sá borið því við að sú ráðstöfun hafi verið nauðsynleg því að þetta væri lífeyrissjóðurinn sinn.

Já, þannig er nú það. Þessir vesalingar, sem búa í sinni gullnu eymd, ætlast sjálfsagt til þess að þeir njóti þeirra þjónustu sem samfélagið býr eða hefur búið öldruðu og fötluðu fólki. Þessir vesalingar sjá þó ekki sóma sinn í að leggja sinn skerf til samfélagsins með því að greiða skatta af því sem þþeim bar. Nei, þeir reiða sig á láglaunafólkið og launþegana sem flestir standa í skilum enda eiga þeir einskis annars kost.

Steingrímur, hugsaðu þig tvisvar um áður en þú fullyrðir annað eins og þetta. Kynntu þér betur fyrirgreiðslu hins opinbera til láglaunafólks og lífeyrisþega á öðrum Norðurlöndum. Dugi það ekki til þess að sannfæra þig skaltu huga að verði nauðsynja þar og hér á landi.

Biddu síðan fátæka Íslendinga afsökunar á orðum þínum sem stafa af fáfræði en ekki illvilja.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Friðrik Jónsson

Það er alltaf að koma betur og betur í ljós,að fjórflokkarnir verða að fara áður en þeir rústa landinu endanlega.

Friðrik Jónsson, 11.4.2010 kl. 22:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband