Eitthvað er að hjá útlendingastofnun

Eftir alla umræðuna um mannréttindabrot annarra þjóða sem orðið hefur að undanförnu á síðum bloggara og dagblaða hér á landi fer ekki hjá því að sá grunur læðist að mönnum að eitthvað sé að hjá útlendingastofnun. Rök talsmann hennar um að mál Pauls Ramsesar og konu hans sé erfitt viðureignar, fá vart staðist.

Konan hafði atvinnuleyfi í Svíþjóð. Eiginmaðurinn hafði kynnst Íslendingum vegna samstarfs um hjálparverkefni í Kenía. Hann leitaði því hingað þegar svarf að eftir kosningarnar og hélt að hann fengi pólitískt hæli hér. Hvar er nú norrænt samstarf? Hvar er nú bræðrahugurinn í garð þeirra sem við teljum okkur vera að aðstoða?

Íslendingum er einhvern veginn fyrirmunað að búa til þannig embættismannakerfi að það vinni fyrir fólkið. Fólk rekst hvarvetna á veggi. Það verður að fara hingað og þangað til þess að leita réttar síns. Enginn bendir þér á rétt þinn. Þetta er eins og verstu sögurnar sem heyrðust frá Ráðstjórnarríkjunum á síðustu öld.

Það læðist að mér sá grunur að því minna sem þjóðfélagið er þeim mun flóknara verði það á sumum sviðum.

Ég hef sjálfur örlitla reynslu af útlendingastofnun. Ég reyndi ásamt félögum mínum að liðsinna erlendri konu, sem stödd var hér á landi vegna menningarverkefnis. Aldrei tókst að hafa tala af þeim starfsmanni útlendingastofnunar sem sá um mál konunnar og aldrei lét stofnunin svo lítið að svara tölvupósti.

Þessi kona varð fyrir hinu sama og Páll Ramses. Bréf frá stofnuninni bárust henni ekki og allt í einu var hún orðin eins konar sakamaður.

Yfirmaður dómsmála í landinu hlýtur eftir allar ábendingarnar sem honum hljóta að hafa borist að láta rannsaka hvar pottur er brotinn hjá stofnuninni. Eitthvað er að.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband