Kolbeinn Tumi Árnason tennist nú óðum

Í fyrrakvöld hringdi Árni, sonur Elínar, og tjáði henni að nú hefði Kolbeinn litli Tumi tekið fyrstu tönnina, en hann fæddist 14. apríl eins og þjóð veit.

Við hjónin fórum ásamt móður Elínar og bróður suður á Reykjanes í dag. Upphafið varð nú eiginlega með eindæmum. Gestur í veislu, sem haldin var hér í fjöleignarhúsinu í gærkvöld, hafði lagt bílnum sínum svo kirfilega fyrir framan bílskúrinn hjá okkur að við urðum að bíða í hálfan annan tíma eftir að lögreglan hefði upp á eiganda bílsins og hann kæmi og sækti hann. En af stað komumst við upp úr kl. hálftvö.

Tanntaka Kolbeins Tuma bögglaðist eitthvað fyrir brjósti heimilishagyrðingsins þar til þetta hnoð varð til:

Fékk hann Kolbeinn Tumi tönn,

tekur þeim að fjölga brátt.

Gleðjast Árni og Elfa Hrönn,

yndi manna er barnið smátt.

Ég hringdi síðan í Elfu Hrönn, móður Kolbeins Tuma og kvað tengdamóður hennar hafa þessa vísu orta. Eitthvað þótti Elínu það ólíkindalegt og sór kveðskapinn af sér. En þá bárust þau tíðendi að tennur drengsins væru orðnar tvær og hann nartaði nú í móður sína.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Arnþór er engum líkur.

Yrkir hann vísurnar.

Títtnefndar tannaklíkur

töfra víst skvísurnar.

Sæmundur Bjarnason, 20.7.2008 kl. 21:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband