Fjármálum efnaðra Íslendinga bjargað fyrir horn

Staðfest hefur verið að sumir ef ekki allir bankarnir, sem nú eru í eigu Íslendinga, hafi haft með höndum sérstaka þjónustu við efnaða Íslendinga. Hjá Glitni var slík þjónusta og Landsbankinn hafði hana einnig með höndum.

Staðfestar heimildir herma að í fyrrahaust hafi fjármunum virtra viðskiptavina, sem lágu í peningabréfum eða hlutabréfum, verið komið inn á hefðbundna innlánsreikninga. Á sama tíma var hringt sem aldrei fyrr í suma minni spámenn og þeir eindregið hvattir til að festa fé sitt í hlutabréfum og ýmsum leiðum sem sölumenn bankanna töldu þess virði að reyndar yrðu. Þegar einum sölumanninum var bent á það í janúar síðastliðnum að fyrirtækin, sem hann nefndi, væru nú tekin að falla í verði svaraði hann að sagan sýndi að hlutabréf skiluðu að jafnaði hærri vöxtum til langs tíma litið en hefðbundnir innlánsreikningar. Væntanlega færi nú Eyjólfur brátt að hressast og hlutabréf að hækka. Það kann að vera að þetta eigi við um Bandaríkin en ekki um áhættusækna Íslendinga.

Þá hefur Seðlabandinn verið harðlega gagnrýndur fyrir að skrúfa ekki fyrir streymi gjaldeyris úr landi eftir að Glitnir var þjóðnýttur og sagði einn viðmælandi að menn hefðu haft viku til þess að ráðstafa sínum málum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Aðalsteinsdóttir

Þetta er sagan endalausa um Jón og séra Jón.

Sigrún Aðalsteinsdóttir, 12.10.2008 kl. 11:36

2 Smámynd: Jóhanna Garðarsdóttir

Það er alveg rétt að hinn almenni sparfjáreigandi sem var að geyma sparifé sitt inn á innlánsreikningum hefur ekki haft flóafrið fyrir bankastarfsmönnum sem hafa verið að hringja í þá og bjóða þeim að færa sparireikninginn í sjóðsbréf og hlutabréf. Ég hef heyrt þó nokkra kvarta yfir þessu. Hinn almenni bankastarfsmaður hefur ef til vill gert þetta í góðri trú og verið sannfærður af sínum yfirmönnum og eigendum bankana. Því þeir hafa ef til vill verið eins og þjóðin sem áleit þá ekki sérfr´ðinga í fjármálum heldur SNILLINGA, svo var .eim hampað. ....Afsakið hvað þetta er langt.

Jóhanna Garðarsdóttir, 12.10.2008 kl. 14:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband