Maklega vegið að ráðherrum og embættismönnum

Ráðherra og embættismenn hér á landi brestur siðgæði.

Í flestum lýðræðislöndum nema á Íslandi hefðu ráðherrar fjármála og viðskipta sagt af sér þegar í ljós kom að þeir vissu ekki um Icesave-reikningana.

Í sömu löndum hefði forstjóri Fjármálaeftirlitsins annaðhvort verið látinn segja af sér eða gert það sjálfviljugur þegar upp komst að hann hefði leynt ráðherra fjármála og viðskipta um stöðuna.

Hvor ráðherran um sig hefði verið látinn víkja vegna þess hve illa þeir fylgdust með þeim málum sem heyrðu undir þá.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Algerlega sammála þér.

Þessir menn hafa algerlega sofið á verðinum og eiga skilyrðislaust að víkja og ættu að vera búnir að því fyrir löngu.

En nú á það líka við um alla Ríkisstjórnina, sem hvorki sér þetta né skilur.

Þau Ingibjörg Sólrún og Geir Haarde þykjast hneiksluð og tala grafalvarleg á svipinn um ómaklega aðför að þessum mönnum.

Þessi forkastanlega afstaða þeirr lýsir bara meira dómgreindarskorti og siðleysi þeirra sjálfra.

Þess vegna ber þeim líka að taka pokann sinn og það fyrr en seinna !

Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 09:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband