Orð skulu standa

Nú bendir flest til að ríkisstjórnin muni hverfa frá verðtryggingu örorkubóta þvert á það sem lög kveða á um.

Ævinlega er það svo að fyrst er skorið niður hjá öldruðu fólki og öryrkjum þegar harðnar á dalnum. Þessir hópar og láglaunafólk virðast axla þyngstu byrðar samfélagsins.

Ríkisstjórnir Sjálfstæðisflokksins lögðu sig í líma við að bæta hag hátekjufólks um leið og kerfi almannatrygginga var eyðilagt. Hvernig væri nú að fara nú að lögum einu sinni til tilbreytingar?

Eftir að Íslendingar komust ekki inn í öryggisráð SÞ eru forsendur mikillar útþennslu utanríkisráðuneytisins brostnar. Þar mætti sparameira en gert hefur orðið. Víðar eru matarholur í stjórnkerfinu sem mætti loka og koma þar með í veg fyrir að grunnstoðir samfélagsins verði skertar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Já ég tel þetta skömm á okkar samfélagi.

Það mætti spara þó svo ég telji það ekki upp hérna.  Það vitum við bæði að þessi þjóð hefur þurft að þola allar þær skerðingar til að halda uppi siðspilltri þjóð.

Átt þú góðan dag módel 52.

Anna Ragna Alexandersdóttir, 18.12.2008 kl. 09:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband