Við þessir vitru

Ég hefði betur hlustað á bollaleggingar tæknimanns í þjónustuveri Símans um daginn.

Svo brá við að myndlykillinn náði ekki sambandi við sjónvarpið. Eftir allmiklar bollaleggingar og prófanir taldi tæknimaður Símans eitthvað vera að leiðslunni sem liggur úr beininum inn í stofu. Þótti mér það með ólíkindum enda hafði hún ekki orðið fyrir neinu hnjaski.

Áðan kom í ljós hvers kyns var. Leiðslan er samsett og hafði tengingin rofnað.

Í þau skipti sem ég hef leitað til þjónustuversins hefur starsfólk brugðist skjótt við og leyst málin með prýði.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband