Gagnrýni Þórs Sari á lög um greiðsluaðlögun heimila og fyrirtækja

Í fljótu bragði virðist sem gagnrýni Þórs Sari hafi nokkuð til síns máls þegar ný lög um greiðsluaðlögun eru skoðuð.

4. gr. laganna er þannig orðuð auk þeirrar 5. að ekki fer hjá því að sá grunur læðist að manni að niðurfelling skulda geti orðið nokkur, samanber ákvæði um niðurfellingu skulda að þremur árum liðnum.

Lögin eru svo torræð og orðalagið á köflum þannig að hætt er við að farin verði dómstólaleiðin til að túlka ákvæði þeirra. Að þessu sögðu er þó rétt að taka fram að mjög skortir á að Þór skýri mál sitt einhverjum rökum. Þau skortir enn þótt líkurnar séu fyrir hendi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband