"Fjöldi elli- og örorkulífeyrisþega sem voru skráðir erlendis með lífeyrisréttindi hefur ekki fækkað þrátt fyrir efnahagskreppu. Mun óhagstæðara er í dag að fá lífeyrisbætur sendar frá Íslandi vegna breytinga á gengi krónunnar."
Tvennt er að athuga við þessa frétt. Fjölda fækkar ekki og upphafsorðið hefði átt að vera í þágufalli.
Það verður nú æ algengara að heyra í útvarpi og lesa í Morgunblaðinu setningar eins og þá sem hér var vitnað til. Um daginn hófst frétt á þessum orðum: "Þeir sem vilja styrkja Rauða krossinn skal bent á" o.s.frv.
Nú þegar segja þarf upp fólki á fjölmiðlum ætti að gefast kjörið tækifæri til að ráða fólk með sæmilega málvitund og þekkingu á íslenskri tungu.
Stjórnmál og samfélag | 8.10.2009 | 13:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
![]() |
Neitaði að segja til nafns |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 7.10.2009 | 17:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
ESB-andstæðingar sem styðja ríkisstjórnina eiga að bindast samtökum og leggja fram frumvarp til laga um afnám heimilda til handa ríkisstjórninni til þess að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Í raun er Samfylkingin einangruð í þessu máli. Miðað við þann niðurskurð sem óhjákvæmilegur verður og öryrkjar, aldraðir og barnafjölskyldur axla öðrum fremur, er fásinna að eiða of fjár í þetta ástæðulausa og heimskulega flan sem umsóknin um aðild er.
![]() |
VG:Sóknaráætlun gegn landsbyggðinni mótmælt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 7.10.2009 | 11:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Stjórnmál og samfélag | 7.10.2009 | 09:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Á Eyjunni er nú auglýst eftir blaðamönnum og sótti ég um. Vafalaust verða margir um hituna enda er nú fjöldi blaðamanna atvinnulaus.
Það er ánægjulegt og jafnframt tímanna tákn að íslenskur netmiðill sé nú í sókn og treysti sér til að ráða blaðamenn til starfa.
Bloggar | 6.10.2009 | 15:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stjórnmál og samfélag | 6.10.2009 | 11:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Í pistlum þessum hefur áður verið lýst vonbrigðum með þá ákvörðun Ögmundar Jónassonar að hlaupast undan merkjum og flýja úr ríkisstjórninni. Fleiri þingmenn Vinstri-grænna virðast undir sömu sök seldir og kemur á óvart að jafngreind og mikilhæf kona og Guðrfríður Lilja Grétarsdóttir geri sig seka um jafnalvarlegan siðferðisbrest og fram kom í máli hennar í silfri Egils í gær.
Á meðan hluti Vinstri-grænna og stjórnarandstaðan halda þessu máli í gíslingu brennur Ísland.
Stjórnmál og samfélag | 5.10.2009 | 11:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Vissrar óþolinmæði er farið að gæta í garð þeirra sem rannsaka orsök bankahrunsins og ýmsir spyrja sig hvers vegna ónefndir bankastjórar og formenn bankastjórna hafi ekki verið ákærðir fyrir löngu. Hvers vegna gengur Sigurjón Árnason laus? spurði einn viðmælandi minn í dag. Annar hélt því fram að betligen Íslendinga væru svo áberandi að þeir héldu enn að þeir gætu stigið fram með betliskál í hendi vegna þeirra synda sem þeir hafi drýgt. Tekið skal fram að erfðarannsóknir eru þessum viðmælanda hugleiknar enda eru þeir skyldir, hann og Kári Stefánsson.
Nú þegar ár er liðið frá bankahruninu væri fróðlegt að Egill Helgason ræddi við einhverja þeirra blaðamanna sem fjölluðu um fjármál áður en bankarnir hrundu. Einhverjir hljóta að geta sagt frá því hvernig gekk að afla upplýsinga og að enginn þorði í raun að segja frá því á hverju væri von. Glöggt dæmi um slíkt voru þeir fyrrum seðlabankastjóri og forsætisráðherra sem sögðu báðir ósatt í fréttatíma ríkisútvarpsins 3. okt. 2008 eins og rifjað var upp í gær.
![]() |
Stórlaxarnir munu ekki allir sleppa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 4.10.2009 | 16:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég hugði mér gott til glóðarinnar og ákvað að forvitnast um vissa hluti. En viti menn. Vefsafnið uppfyllir ekki lágmarkskröfur um aðgengi. Hægt er að leita að vefsíðum. Þegar listi yfir færslurnar birtist kemur í ljós að skjálesarar lesa ekki tenglana í töflunni sem sýnir hinar ýmsu færslur.
Það virðist mikill misbrestur á að gætt sé að aðgengi þegar opinberar síður eru endurnýjaðar. Ég hef því sent ýmsum yfirmönnum Landsbókasafnsins meðfylgjandi bréf:
Ágæti viðtakandi.
Viðleitni Landsbókasafns Háskólabókasafns til að veita almenningi sem mestar og besta upplýsingar er til mikillar fyrirmyndar.
Við hönnun hins nýja vefsafns hefur ekki verið gætt að aðgengi þeirra sem nota skjálesara. Hægt er að fletta upp á vefsíðum. Listinn sem þá birtist er óaðgengilegur. Tenglarnir virka alls ekki og því er þessi þjónusta gagnslaus þeim sem eru blindir eða sjónskertir.
Þetta stríðir gegn upplýsingastefnu stjórnvalda og verður þess því vænst að úr verði bætt hið fyrsta.
Virðingarfyllst,
Arnþór Helgason
Stjórnmál og samfélag | 2.10.2009 | 13:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hljóðlistamaðurinn Michael Oster birtir á heimasíðu sinni ýmislegt um hljóðritun margvíslegra náttúrufyrirbæra. Þar á meðal er fróðleg samantekt um hljóðritun freta. Michael telur afar vandasamt að hljóðrita þá og þurfi til þess langan tíma svo að árangurinn verði viðunandi.
Í framhaldi af pistlum Jóns væri freistandi að taka saman örlitla hljóðmynd um freti. Ekki er ólíklegt að tveggja til þriggja mínútna fret-hljóðmynd krefðist talsverðrar fyrirhafnar. Það er næstum vísindalega sannað að meginfretir eru iðkaðir á morgnana þegar karlmenn fara og athafna sig á salerninu. Þess vegna þyrfti sá, sem tekur að sér þessa hljóðmyndargerð, að fara víða og fá heimild til þess að dvelja næturlangt hjá nokkrum fjölskyldum.
Síðan má velta því fyrir sér hvort það samræmdist velsæmismörkum ríkisútvarpsins að útvarpa slíkri hljóðmynd. En verkefnið er verðugt.
Stjórnmál og samfélag | 2.10.2009 | 08:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tónlistarspilari
Tenglar
Fonix.blog.is
Helena Björnsdóttir þjálfuð til þess að nýta sér blindrahund
Bloggvinir
-
alla
-
axelthor
-
arnibirgisson
-
ormurormur
-
astafeb
-
bjarnihardar
-
gattin
-
dora61
-
saxi
-
jaherna
-
jovinsson
-
fjarki
-
gislisigurdur
-
gudni-is
-
gelin
-
gummigisla
-
heidistrand
-
helgigunnars
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hoskibui
-
isleifur
-
jakobk
-
fun
-
jonhalldor
-
jon-o-vilhjalmsson
-
nonniblogg
-
juliusvalsson
-
kje
-
kristbjorggisla
-
methusalem
-
mortenl
-
moguleikhusid
-
skari60
-
rafng
-
ragnar73
-
fullvalda
-
duddi9
-
siggisig
-
saemi7
-
vefritid
-
thorirj
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kínversk málefni og menning
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar