Agaleysið í íslensku þjóðfélagi hefur verið þannig að slíkum skrýlmennum þykir vegsauki af því að berja lögreglumenn í höfuðið við skyldustörf sín, sletta skyri og málningu á hvað sem fyrir verður og fremja önnur skemmdarverk.
Það er leitt að friðarsinnar og náttúruverndarmenn svo sem Vinir Tíbets og Saving Iceland skuli vera skálkaskjól fyrir ofbeldisfull lítilmenni sem ástunda slíkar aðferðir. Þannig afla þaur sér fyrirlitningar meginþorra þjóðarinnar og vinna gegn upphaflegum markmiðum, nema þaur sigli undir fölsku flaggi og tilgangurinn sé að valda sem mestri eyðileggingu.
![]() |
Mótmæli við lögreglustöðina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 7.8.2009 | 22:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Núverandi bankastjóri hefur vafalaust verið einhverjum þeirra til halds og trausts sem sóttust eftir þessum gríðarlegu lánum. Athafnir hans um helgina hafa orðið til þess að vafi hefur vanknað um hæfni hans sem stjórnanda nýs banka með nýjum aðferðum.
Að lokum skal vikið að Karli Wernerssyni. Hann skrifar prýðilega grein í Morgunblaðið í dag. Þar svarar hann ekki þeirri spurningu hvers vegna Milestone blóðmjólkaði Sjóvá svo að þar stendur vart steinn yfir steini. Hafi þar græðgi ekki ráðið mestu virðist flónska, fáfræði eða bíræfni hafa verið helsta ástæðan.
Stjórnmál og samfélag | 4.8.2009 | 16:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Forvitnum lesendum er bent á vefinn http://www.vaka.hi.is en þar er að fina upplýsingar um stjórnir félagsins.
Sá grunur læðist að mönnum við könnun þessara gagna að ´Fjármálaeftirlitið undir stjórn fyrrum forstöðumanns hefði átt óhægt með að taka á ýnsum þáttum bankaútþennslunnar vegna vináttutengsla við þá sem fóru þar fremstir í flokki.
Stjórnmál og samfélag | 3.8.2009 | 10:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Snáðinn læddist fram í eldhús og sagðist ekki geta sofið lengur svo að afi stakk upp á að þeir fylgdust með barnatíma ríkissjónvarpsins.
Á dagskrá voru bandarískar barnamyndir að ég hygg og hafði verið sett við þær íslenskt tal. Til mikillar fyrirmyndar er að sjónvarpið skuli láta þýða efni sem ætlað er börnum, enda hafa komið fram á undanförnum árum ýmsar snilldarvel gerðar þýðingar.
Í morgun fannst mér talsvert skorta á að vandað hefði verið til þýðinganna. Guðfinna rúnarsdóttir virðist hafa þýtt flestar myndirnar sem sýndar voru í morgun. Raddbeiting leikaranna var með ágætum en málfarið ekki upp á marga fiska.
Búinn var til morgunverður fyrir fólk en ekki handa því (enska forsetningin for), börn (pöddur eða eitthvað annað) léku í stað þess að leika sér, upphrópanir eins og "Ó nei" voru algengar og margt bar þess keim að ensk tunga væri móðurmál þess er samdi textann. Þýðingarnar voru yfirleitt hráar þótt nokkrum sinnum brygði til hins betra.
Ýmislegt fleira gæti ég tínt til. Textinn var þó að flestu leyti fremur lipurlega saman settur. Þýðandinn ættii að vanda betur verk sitt og láta einhvern lesa yfir textann áður en hann er hljóðsettur handa íslenskum börnum.
Barnatímar sjónvarpsins eru vinsælir. Því er hætt við að málfar þeirra móti málþróun barnanna. Ábyrgur ríkisfjölmiðill (ef hann er þá til) á skilyrðislaust að gera kröfur til þess að dagskrárgerðarfólk vandi málfar sitt í stað þess að kasta til höndunum. Er þetta einkar mikilvægt þegar efni er matreitt handa börnum.
Stjórnmál og samfélag | 3.8.2009 | 10:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hætt er við að þessi auglýsing stríði gegn banni á áfengisauglýsingum í fjölmiðlum.
Stjórnmál og samfélag | 3.8.2009 | 10:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í frétt mbl.is er getið um tengsl sýslumannsins í Reykjavík við menn sem kunna að eiga hagsmuna að gæta í lögbannsmálinu. Sagt er að "sýslumaðurinn í Reykjavík sé vanhæfur vegna tengsla sona hans við málið. Synir hans eru þeir Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja og einn helsti talsmaður gömlu bankaklíkunnar og Frosti Reyr Rúnarsson, fyrrum forstöðumaður verðbréfamiðlunar Kaupþings og einn af kúlulánþegum Kaupþings.
Lesendur geta nú glöggvað sig frekar á málinu með því að blaða í lánabókinni sem fylgir þessari færslu.
Stjórnmál og samfélag | 2.8.2009 | 17:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hér með er almenningur hvattur til að kynna sér umrædd skjöl og fjölmiðlar jafnframt hvattir til þess að láta ekki þagga niður í sér. Nóg er nú samt!
Bankaleyndin á Íslandi er löngu komin út í öfgar. Almenningur á heimtingu á að fá að vita sannleikann. Sennilega stafar upphlaup stjórnenda Kaupþings af því að sannleikanum verði hver sárreiðastur. Rétt væri að nafngreina þá sem stóðu fyrir þessari lögbannskröfu.
![]() |
Hendur fjölmiðla bundnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 1.8.2009 | 21:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tónlistarspilari
Tenglar
Fonix.blog.is
Helena Björnsdóttir þjálfuð til þess að nýta sér blindrahund
Bloggvinir
-
alla
-
axelthor
-
arnibirgisson
-
ormurormur
-
astafeb
-
bjarnihardar
-
gattin
-
dora61
-
saxi
-
jaherna
-
jovinsson
-
fjarki
-
gislisigurdur
-
gudni-is
-
gelin
-
gummigisla
-
heidistrand
-
helgigunnars
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hoskibui
-
isleifur
-
jakobk
-
fun
-
jonhalldor
-
jon-o-vilhjalmsson
-
nonniblogg
-
juliusvalsson
-
kje
-
kristbjorggisla
-
methusalem
-
mortenl
-
moguleikhusid
-
skari60
-
rafng
-
ragnar73
-
fullvalda
-
duddi9
-
siggisig
-
saemi7
-
vefritid
-
thorirj
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kínversk málefni og menning
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 320108
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar