Er nú víst að svo sé? Hreinn er fyrrum stjórnarformaður Baugs og er enn í stjórn. Í dag var ég spurður hvort hann væri leppur Baugsmanna.
Hvaðan koma fjármunirnir? Hvernig heur Hreinn auðgast á undraskömmum tíma?
Stjórnmál og samfélag | 5.11.2008 | 18:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mao formaður setti fyrir nokkrum áratugum fram skilgreiningu sína á heimunum þremur. Fremrst stóðu Bandaríkin og Sovétríkin, risaveldin tvö. Þá voru ýmis efnuð ríki eins og iðnríki Vestur-Evrópu, Japan, Suður-Kórea, Ástralía Nýja Sjáland o.fl. Þriðja heiminum tilheyrðu síðan þróunarlönd Afríku, Asíu og Mið- og Suður-Ameríku. Þar voru einnig furstadæmin og arabisku ríkin við Persaflóa og litla Ísland. Hvers vegna? Vegna þess að Ísland var fyrst og fremst hráefnisframleiðandi og lítil fullvinnsla í landinu.
Um daginn talaði einn ráðherra ríkisstjórnarinnar um að Ísland væri komið í hóp skuldugra þriðja heims ríkja. Það hefur næsta lítið greyst frá því að Mao formaður setti fram þessa kenningu. Ísland er enn þriðja heims ríki.
Ef menn virkja nú orkuna sem býr í þjóðinni og sækjast eftir hugmyndum frá fjöldanum getur það vel orðið að Íslandi takist að komast upp í annan heiminn með fullvinnslu og nýtingu tækni til þess að skapa hér lífvænleg skilyrði. Þar til slíkt gerist erum við og verðum þriðja heims ríki.
Stjórnmál og samfélag | 5.11.2008 | 15:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stöðugt fleiri verða nú til að gagnryna hversu lítinn þátt Alþingi tekur í mótun þess starfs sem inna verður af hendi til þess að ná þjóðarskútunni upp úr þeim öldudal sem hún er stödd í. Stýrivaxtahækkunin ein og sér segir ekki alla söguna og ekki hefur verið skýrt til hlítar hvaða tilgangi hún þjónar. Norskir hagfræðingar hafa gagnrýnt hana og reyndar varað við henni og fjölmargir Íslendingar, jafnt leikir sem lærðir, telja að hún hafi engin áhrif á krónuna.
Margir spyrja nú hvers vegna efnahagsáætlunin sé ekki rædd á Alþingi þegar þing Úkraínu og Ungverjalands virðast hafa tekið fullan þátt í umræðum um samskiptin við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn. Þá er ýmsum spurn hvernig standi á því að mál Íslendinga taki svona miklu lengri tíma en málefni þessara ríkja.
![]() |
Þingmenn eins og afgreiðslufólk á kassa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 5.11.2008 | 15:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nú er hafinn sami gamli söngurinn um að ýta þurfi Ríkisútvarpinu af markaðinum af því að einkareknu fjölmiðlarnir séu í vandræðum. Ég fullyrði að verði niðurstaðan sú að koma í veg fyrir að auglýsingar verði birtar í Ríkisútvarpinu skerðist mjög hagur auglýsenda og almennings því að langflestir hlusta enn á Ríkisútvarpið. Þetta væri því hefndarráðstöfun.
Það er eins og þau Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Sjálfstæðisflokkurinn hafi aldrei getað gert upp við sig hvort eigi að drepa Ríkisútvarpið eða lofa því að lifa. Í öllum málflutningi Þorgerðar hefur verið einhver tvískinnungur. Í ljósi þess að fjölmiðlar geti lent í höndum eins manns aðrir en Ríkisútvarpið þarf að styrkja stöðu þess segir hún. Um leið segir hún að Ríkisútvarpið þurfi óhjákvæmilega að draga saman seglin og full ástæða sé að skoða stöðu þess á auglýsingamarkaðinum.
Þegar Ríkisútvarpinu var breytt í opinbert hlutafélag var fullyrt að það væri gert m.a. til þess að styrkja stöðu þess og gera því kleift að taka þátt í samkeppni á eðlilegan hátt. Fullyrða má að ríkisútvarpið hafi að sumu leyti misnotað yfirburðastöðu sína með því t.d. að bjóða í fokdýra íþróttaatburði og ryðja öðru dagskrárefni til hliðar. Aldrei hef ég fengið að vita hvort stofnunin hagnaðist á því. En þetta er líka hið eina ef undan er skilinn sá orðrómur að boðið hafi verið í dagskrárgerðarmenn.
Nú þarf að styrkja Ríkisútvarpið. Sjá þarf til þess að það geti sinnt þeirri skyldu að búa til vandað efni handa hlustendum sínum. Sé litið á útvarpsstöðvar víða um heim kemur í ljós að langflestar einkareknar útvarps- og sjónvarpsstöðvar sinna lítt hinum menningarlega þætti. Dægurmenningin á hug þeirra allra enda er flutningur gæðaefnis sjaldan talinn borga sig. Þær einkareknu stöðvar sem sinna sígildri tónlist fara meira að segja eftir tilteknum vinsældalista. Þetta á m.a. við um fjölmenn lönd eins og Bretland, Bandaríkin, Þýskaland og Norðurlöndin.
Hér á landi hefur margsannast að fámenni þjóðarinnar leyfir afar takmarkaðan fjölda útvarps- og sjónvarpsstöðva sem geta staðið undir því nafni að kallast menningarveitur. Má m.a. minnast harmsögu Talstöðvarinnar. Hvað stóð sú tilraun lengi?
Innan Sjálfstæðisflokksins eru öfl sem aðhyllast óhefta einkavæðingu. Þau eru ekki þögnuð þrátt fyrir skipbrot frjálshyggjunnar. Forysta flokksins hefur á stundum verið höll undir þessi öfl og hrakist undan þeim. Ekki má þrengja um of að einkaframtakinu með regluverki. Alls ekki má setja reglur um aðgengi allra að vefnum, það á fyst og fremst að spretta af velvilja þeirra sem eiga peningana og ráða. Ekki mátti líta eftir bönkunum. Þeir áttu að fá að ráða og um stundarsakir áttu þeir jafnvel að ráða framtíð íslenskrar tungu. Fleiri dæmi mætti nefna um andúð Sjálfstæðisflokksins á lögum og reglum sem teljast eðlileg í öllum nágrannalöndum okkar.
Sjálfstæðisflokkurinn og Þorgerður Katrín þurfa að fara að tala skýrt og skorinort um þær hugmyndir sem þau hafa um fjölmiðlana og þar á meðal Ríkisútvarpið. Hálfkveðnar vísur og vingulsháttur valda meiri skaða en svo að boðlegt sé almenningi og skattgreiðendum þessa lands.
Stjórnmál og samfélag | 5.11.2008 | 11:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
þri. 4. nóv. 2008 23:40 Hjónin Magnús Kristinsson og Lóa Skarphéðinsdóttir við þyrluna góðu í Eyjum Græna lúxusþyrlan til sölu Lúxusþyrla Magnúsar Kristinssonar, útgerðarmanns í Vestmannaeyjum og eiganda Toyota bílaumboðsins, er nú til sölu. Þetta kemur fram á fréttavef Suðurlands. Flestir kannast við þyrluna sem er auðþekkjanleg í loftinu af iðagrænum skrokknum, en Magnús hefur notað þyrluna vegna tíðra ferða milli lands og Eyja. Þyrlan er til afhendingar strax samkvæmt söluauglýsingu. Vélin er auglýst hjá Helicopter Exchange og kemur þar fram að framleiðsluár hennar sé 1998 en hún hafi verið afhent ný árið 1999. Af myndum og lýsingu á síðunni að dæma er innrétting þyrlunnar afar glæsileg. Hún er græn sem fyrr segir, með gylltum og rauðum löndum, en innbyrðis er hún búin ljósdrapplitum leðursætum og gólfteppi í stíl. Milli farþegarýmis og stjórnklefa er rafknúin "límósínurúða" og gler vélarinnar er skyggt. Þá er að sjálfsögðu veitingageymsla um borð sem og hljómtæki með snertitakkabúnaði auk tveggja síma. Innréttingin er öll viðarskreytt með rósaviði og handföng gulli slegin. Söluverð þyrlunnar er hinsvegar ekki tekið fram í auglýsingu. til baka
Stjórnmál og samfélag | 5.11.2008 | 09:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 5. nóvember 2008
Tónlistarspilari
Tenglar
Fonix.blog.is
Helena Björnsdóttir þjálfuð til þess að nýta sér blindrahund
Bloggvinir
-
alla
-
axelthor
-
arnibirgisson
-
ormurormur
-
astafeb
-
bjarnihardar
-
gattin
-
dora61
-
saxi
-
jaherna
-
jovinsson
-
fjarki
-
gislisigurdur
-
gudni-is
-
gelin
-
gummigisla
-
heidistrand
-
helgigunnars
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hoskibui
-
isleifur
-
jakobk
-
fun
-
jonhalldor
-
jon-o-vilhjalmsson
-
nonniblogg
-
juliusvalsson
-
kje
-
kristbjorggisla
-
methusalem
-
mortenl
-
moguleikhusid
-
skari60
-
rafng
-
ragnar73
-
fullvalda
-
duddi9
-
siggisig
-
saemi7
-
vefritid
-
thorirj
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kínversk málefni og menning
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 2
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 320104
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar