Nýtt hljóðblogg

Ég hef haldið úti bloggi þessu í tæp fjögur ár. Mikill hluti skrifanna hefur einkennst að allsnarpri gagnrýni sem ýmsum hefur þótt óþarflega hörð á stundum.

Á næstunni verður dregið úr skrifum á þessari síðu. Undirritaður er nú að undirbúa nýja bloggsíðu, hljod.blog.is. Þar verða birt ýmis hljóðrit svo sem náttúruhljóð, tónlist, viðtöl, frásagnir o.fl. Hljóðritin verða á mp3-sniði og ættu því að verða aðgengileg flestum tölvunotendum.

Gert er ráð fyrir að síðan verði talsvert myndskreytt.

Efnið hefur safnast að mér á undanförnum árum og berst enn að. Viðtöl verða einungis birt með samþykki þeirra sem rætt verður eða hefur verið við.

Hlustendum og aðdáendum hljóðrita er velkomið að senda inn efni til birtingar á síðunni.

Skráið hjá ykkur slóðina

http://hljod.blog.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband