Gleðidagur

Laugardagurinn 3. maí var mikill gleðidagur hjá okkur hjónum. Birgir Þór var hjá okkur, en við sóttum hann á leikskólann daginn áður. Gisti hann hjá okkur.

Um nónbil komu þau Árni og Elfa með litla sveinbarnið í heimsókn til ömmu og afa. Heilsast blessuðu barninu vel og það þroskast og dafnar.

Það fylgir því sérstök sæla að hafa slíkt ungviði nærri sér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband