Íslendingar rétta úr kútnum - Steingrími og Gylfa hrósað

Þá kom loksins ein góð frétt í kvöld. Íslendingum gengur vel að rétta úr kútnum, sagði formaður sendinefndar Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Síðan heyrist því hvíslað manna á meðal að gjaldeyrissjóðssérfræðingarnir hafi verið harla ánægðir með Steingrím, fjármálaráherra, og Gylfa, viðskiptaráðherra. Sjálfsagt hafa þeir orðið hissa á því að sá sem Kanar kalla gjarnan kommúnista skuli hafa vit á fjármálum og bæði glaðir og hissa að hitta hagfræðing á stóli viðskiptaráðherra. Eitt er víst. Það virtist létt brúnin á talsmanni sjóðsins í morgun.

Síðan er hin gleðisagan að Jón Gerald ætli að stofna lágvöruverðsverslun og sé þegar kominn nokkur hópur fólks sem hefur hug á að leggja fé í fyrirtækið. Haft er eftir Jóni Gerald að ekki verði stefnt að einhverju stórgróðafyrirtæki. Eitt erum við Jón Gerald sammála um. Íslendingar þurfa að venja sig af því að vera vaxtafíklar. Það gerist einungis með því að lækka stýrivextina um leið og verðbólgan hjaðnar.

Sem sagt gott.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er nokkuð að marka það sem þeir seigja hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum???
 

haukur gunnarsson (IP-tala skráð) 14.3.2009 kl. 11:43

2 identicon

Þetta er mikill misskilningur hjá þér Arnþór. Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn greiddi ekki út annann hluta lánsinns eins og til stóð, vegna þess að ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingar hafði ekki staðið við samkomulagið sem gert var og með öllu óvíst hvernig það færi. Hins vegar hefur ekki farið hátt að forseti  sjóðsinns sagði að þáverandi stjórnvöld og Seðlabanki Íslands hefði í aðdraganda bankahrunsinns gert allt rétt. Það er sérstakt að um þetta hefur nánast ekkert verið fjallað í fjölmiðlum, aðeins smá klausa á mbl.is

Ómar Sigurðsson (IP-tala skráð) 14.3.2009 kl. 18:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband