Í síðustu viku virðist sem einn þingmaður Samfylkingarinnar hafi farið fullur í ræðustól og farið mikinn um Icesave-samningana. Verður það að teljast ábyrgðarhluti þegar um jafnalvarlegt mál er að ræða. Að vísu er alkunna að ýmsir þingmenn á síðustu öld voru iðulega við skál í ræðustóli á Alþingi og er það vart til fyrirmyndar.
Fyrir nokkrum árum varð þingmaður nokkur uppvís um fjárdrátt og þverneitaði sök þegar fjölmiðlar gengu á hann. Síðar kom hið sanna í ljós. Nú virðist hið sama uppi. Það fer vart hjá því að menn komist að annarri niðurstöðu en þeirri að þingmaðurinn, sem hélt ræðuna á fimmtudaginn og félagar hans stríddu, hafi verið ölvaður. Hafi hann ekki verið ölvaður hefur hann verið veikur. Eða hvað varð honum tungutefill og hugarhefill?
Hvenær skyldu þingmenn læra að biðjast afsökunar og segja satt?
Satt og logið sitt er hvað,
sönnu er best að trúa.
Hvernig á að þekkja það
þegar flestir ljúga?
Stjórnmál og samfélag | 26.8.2009 | 09:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Árið 1993 kom myndbandstæki á heimilið. Áttaði ég mig á því að spólurnar væru fyrirtaks geymsla undir hljóðrit. Safnaði ég efni á tæplega 60 spólur, samtals um 400 klst. Nú hálfum öðrum áratug síðar hef ég komist að því að ódýrar spólur, sem ég freistaðist til að kaupa, eru farnar að skemmast og því góð ráð dýr.
Að undanförnu hef ég því dundað mér við að færa þetta efni á stafrænt snið. Vitaskuld hlusta ég ekki á allt efnið heldur færi það yfir á tölvu og brýt risastórar hljóðskrár niður í einingar. Vista ég efnið sem mp3-hljóðskrár á 256 bitum og haldast því hljóðgæðin að mestu.
Ef mig langaði að ná tilteknu efni þurfti ég stundum að setja myndbandstækið í gang nokkru áður en útsending hófst. Slæddust þannig með auglýsingar, veðurfregnir, fréttir og sitthvað fleira. Auglýsingarnar eru einkar athyglisverðar og bregða ljósi á tískuna hverju sinni. Tilkynningarnar varpa auk þess ljósi á ástandið í þjóðfélaginu. Vegagerðin varar við illviðri, rætt er um færð á götum borgarinnar og afleiðingar illviðra eru tíundaðar.
Það gæti orðið skemmtileg hljóðmynd að útvarpa gömlum auglýsingum.
Stjórnmál og samfélag | 26.8.2009 | 09:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Frosti Sigurjónsson hefur nú boðað til hávaðans mikla á Austurvelli eða hvar sem er kl. 12 á morgun, fimmtudag. Hvetur hann almenning til að taka virkan þátt í þessu uppátæki hvar sem fólk er statt og mótmæla þannig þeim álögunum sem Icesave-samningarnir hafa í för með sér.
http://vidhorf.blog.is/blog/vidhorf/entry/937374/
Stjórnmál og samfélag | 26.8.2009 | 09:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Áður fyrr lá það orð á íslensku sementi að það væri ekki eins sterkt og danska sementið eða hið breska sem flutt hefur verið hingað inn. Fyrir nokkru sögðu mér byggingartæknifræðingar að rannsóknir hér á landi hefðu orðið til þess að bæta mjög framleiðslu sementsverksmiðjunnar.
Mér skilst án þess að hafa rannsakað málið, að íslenskt sement sé yfirleitt ekki eða jafnvel alls ekki notað í virkjanir og að ekki sé það flutt úr landi. Hvað veldur? Og ekki er Ráðhúsið í Reykjavík úr íslensku sementi.
Hvað þarf til þess að opinber fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar velji fremur íslenska sementsframleiðslu en erlent sement?
Fróðlegt væri að fá skoðanir þeirra sem þekkja málavöxtu til hlítar.
Stjórnmál og samfélag | 25.8.2009 | 07:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Nýjasta þjóðfíflið virðist vera Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor. Í morgun lýsti hann því fjálglega að þjóðin hefði öll tekið þátt í dálætinu á útrásarvíkingunum, öll þjóðin nema Davíð Oddsson. Hann viðurkenndi meira að segja að hann hefði orðið fórnarlamb þessarar aðdáunar.
Ég þekki fjölmargt fólk sem tók hvorki þátt í dansinum kringum gullkálfinn né dáðist að útrásinni. Það eru til vitni að því að sumarið 2007 datt mér í hug að losa mig við hlutabréf sem upphaflega höfðu verið í Eimskipafélagi Íslands en voru nú komin annað. Af því að ég gerði það ekki tapaði öldruð móðir mín 16 milljónum og eftir stendur lág upphæð sem er nokkuð nærri virði bréfanna í upphafi. Þessar 16 miljónir voru því rafbóla sem sprakk og ég er guðs lifandi feginn að hafa ekki orðið græðginni að bráð.
Hvað á að segja við mann eins og Hannes Hólmstein? Á Biblíumáli yrði hrópað: Þér heimskingjar. Um hina verður sagt: Vér þessir vitru.
Stjórnmál og samfélag | 24.8.2009 | 18:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Árið 1998 undirbjó ég um þetta leyti þátt fyrir Ríkisútvarpið sem ég kallaði "Úr heimilishljóðmyndasafninu" ef ég man rétt. Birtust þar ýmis hljóðrit. Í tilefni þáttarins hljóðritaði ég Maraþonhlaupið og birti hluta hljóðritsins í þættinum. Ef grannt var hlustað gátu menn heyrt ýmislegt athyglisvert. Jón Sigurðsson tók þátt í skemmtiskokki í hjólastól, einhverjir hlupu með barnakerrur og svo má lengi telja. Í morgun rigndi of mikið til þess að ég nennti að hljóðrita hlaupið. ´Ég stefni þó að því að hljóðrita það í náinni framtíð enda er ég nú mun betur tækjum væddur en fyrir 11 árum.
Stjórnmál og samfélag | 22.8.2009 | 11:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Svipað ástand virðist komið upp í Landakotsskóla, en þar er víst fátt um sérkennara. Stjórnendur einkaskólanna hafa borið því við að ekki sé hægt að taka á móti þessum börnum vegna aðstöðuleysis og skólastjóri Tjarnarskóla þóttist ekki vita um nein lög eða reglugerðir sem skylduðu skólann til að taka við fötluðum börnum.
Nú er það svo að mikill meirihluti þess fjár, sem þarf til að starfrækja einkaskólana, þar á meðal laun kennaranna, koma úr opinberum sjóðum. Það hlýtur því að vera umhugsunarefni hvort styrkja eigi þessa skóla eigi þeir að starfa sem einkaskólar úrvalsnemenda sem stjórnendurnir velja sjálfir.
Hið sama gildir um einkareknu háskólana. Þeir geta vart talist einkareknir á meðan laun kennara koma að mestu eða öllu leyti úr ríkissjóði. Er ekki þarna komin prýðileg leið til þess að spara í rekstri hins opinbera og veita þeim fjármunum, sem þannig verða afgangs, til opinberra skóla?
Þegar kreppir að í þjóðfélaginu hefur það iðulega verið látið bitna á fötluðu fólki. Það missir fyrr vinnuna og nú veigra einkaskólarnir, sem styrktir eru af opinberu fé, sér við að taka þessum nemendum opnum örmum. Allur rökstuðningur stjórnenda Tjarnar- og Landakotsskóla virðist bera vott um sérhyggju í stað metnaðar, sérhyggju í garð þeirra sem eru taldir betur mega sín. Er þetta hið nýja Ísland sem koma skal? Er þessi stefna stjórnenda Landakotsskóla í anda þeirra sem stofnuðu skólann á sínum tíma?
Skyldi Kristur ekki spyrja stjórnendurna, þegar þeir koma fyrir auglit hans: "Hvar eru yðar minnstu bræður?"
Stjórnmál og samfélag | 21.8.2009 | 09:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Regína á langan feril að baki og er á meðal þeirra sem hafa sinnt sérkennslu fatlaðra nemenda í almennum skólum. Það er haft eftir starfsmanni Landakotsskóla að þetta ásamt öðru sé ástæða uppsagnarinnar, ekki skipulagsbreytingar eins og formaður skólastjórnar vék að.
Einhver andstaða virðist hafa verið á meðal sumra kennara Landakotssskóla gegn því að þörfum fatlaðra nemenda væri sinnt við skólann og töldu þeir að það bitnaði á öðrum nemendum. Rógsherferð gegn Regínu varð til þess að Páll Baldvin beit á agnið og rak Regínu á þriðjudag.
Skipulagsbreytingar eru yfirleitt fremur ómerkilegt yfirvarp þegar ráðríkir formenn vilja losna við stjórnendur. Að sögn kennara, sem ofbauð framkoma Páls Baldvins í garð Regínu, ávarpaði hann Regínu eins og hund en ekki manneskju.
Kennarar eru slegnir. Einhverjir hafa þegar sagt upp og aðrir hafa greint frá því að þeir hyggist forða sér frá sökkvandi skipi. Þá hafa foreldrar skráð börn sín úr Landakotsskóla.
Af hverjum lærði Páll Baldvin stjórnunaraðferðir sínar?
Stjórnmál og samfélag | 20.8.2009 | 08:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
![]() |
Hljómar eins og fjárkúgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 19.8.2009 | 16:59 (breytt kl. 17:09) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Útlitið var svipað og í fyrra, en mér var þásagt að úr því yrði bætt í ár. Notað er svokallað flash-skjal ef ég kann að nefna það rétt sem gerir notendum skjálesara óhægt um vik að skoða síðurnar.
Opinberar stofnanir hegða sér sumar hverjar eins og sjónskert fólk eigi ekki rétt á að afla sér þeirra upplýsinga sem í boði eru. Þó verður að taka fram að flestar vefsíður þeirra eru til fyrirmyndar, en nokkur leið dæmi eru um hið gagnstæða. Þannig hefur lítið þokast hjá ríkisskattstjóra og umsjonarmenn menningarnætur eru enn við sama heygarðshornið. Ef til vill er vonlítið að berjast gegn margnum einkum þegar samtök fatlaðra eins og Blindrafélagið og Öryrkjagbandalag Íslands virðast láta sig þessi mál litlu skipta. A.m.k. hef ég lítið séð af áberandi efni á heimasíðum þeirra um aðgengismál.
Dropinn holar steininn og því mun undirritaður ótrauður halda baráttu sinni fyrir bættu upplýsingaaðgengi áfram.
Stjórnmál og samfélag | 19.8.2009 | 09:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tónlistarspilari
Tenglar
Fonix.blog.is
Helena Björnsdóttir þjálfuð til þess að nýta sér blindrahund
Bloggvinir
-
alla
-
axelthor
-
arnibirgisson
-
ormurormur
-
astafeb
-
bjarnihardar
-
gattin
-
dora61
-
saxi
-
jaherna
-
jovinsson
-
fjarki
-
gislisigurdur
-
gudni-is
-
gelin
-
gummigisla
-
heidistrand
-
helgigunnars
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hoskibui
-
isleifur
-
jakobk
-
fun
-
jonhalldor
-
jon-o-vilhjalmsson
-
nonniblogg
-
juliusvalsson
-
kje
-
kristbjorggisla
-
methusalem
-
mortenl
-
moguleikhusid
-
skari60
-
rafng
-
ragnar73
-
fullvalda
-
duddi9
-
siggisig
-
saemi7
-
vefritid
-
thorirj
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kínversk málefni og menning
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar