Ásgerður Halldórsdóttir - skjótráður bæjarstjóri

Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri vor Seltirninga, tvínónar iðulega ekki við það sem hún tekur sér fyrir hendur.
Í dag voru skoðaðar aðstæður báðum megin Eiðistorgs og inni á torginu sjálfur. Í hópnum voru auk undirritaðs áður nefnd Ásgerður Halldórsdóttir, Gísli Hermannsson, framkvæmdastjóri umhverfissviðs bæjarins, Vala Jóna Garðarsdóttir og Rannveig Traustadóttir frá Þekkingar- og þjónustumiðstöð Blindra, sjónskertra og daufblindra einstaklinga.
Ákveðið hefur verið að fjarlægja steina af gangstétt austan við torgið auk steina og tilhöggvins grjóts sem er vestan við torgið sjálft og hinum megin Suðurstrandar, en þar liggja tilhöggnir steinar ofan á gangstéttinni. Þá verður komið fyrir hljóðbúnaði í gangbrautarljósum.
Einnig er gert ráð fyrir framkvæmdum sem eiga að hindra að óhöpp verði við stigana upp á aðra hæð torgsins og hugmyndir eru um leiðarlínur til þess að auðvelda umverð u torgið.
Vonandi takast þessar aðgerðir vel og verða fyrirmynd öðrum bæjarfélögum.
Starfsmenn Þekkingarmiðstöðvarinnar  höfðu orð á hversu ánægjulegt hefði verið að hitta bæjarstjórann, sem gerði ráð fyrir lausn vandans í stað þess sem ekki væri unnt að hrinda í framkvæmd.
Ef til vill er hér dæmigerður stíll kvenna á ferðinni? Vandamál eru til þess að þau verði leyst.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Viðbrögð Ásgerðar minna á skjót viðbrögð Davíðs Oddssonar þá hann var borgarstjóri í Reykjavík.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 19.10.2015 kl. 18:55

2 Smámynd: Arnþór Helgason

Það má til sanns vegar færa. Davíð tók einatt við góðum hugmyndum og veitti þeim brautargengi. Þannig styrkti hann þróun talgervils fyrir íslensku með 150.000 kr árið 1986. Það var fyrsti opinberi styrkurinn sem fékkst vegna þróunar tölvutals.

Arnþór Helgason, 19.10.2015 kl. 21:19

3 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Ég þekki til góðra verka hans í þágu geðfatlaðra og ekki skorti skjót viðbrögð í þeim málum sem ég þekki.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 19.10.2015 kl. 21:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband