Fyrirmyndar heimasíða

Heimasíðu Seltjarnarness hefur nýlega verið breytt.

Heimasíðan hefur löngum verið ein aðgengilegasta síða sveitarfélags á Íslandi. En lengi getur gott batnað. Þær breytingar sem hafa verið gerðar á síðunni eru mjög til bóta og auðvelda alla leit.

Eftir skyndiskoðun er full ástæða til að óska Seltirningum til hamingju með þessa nýju síðu.

Ég hef áður á þessari síðu fjallað um ljósleiðarann sem lagður var um nesið og á að styrkja rafræna stjórnsýslu. Nú vantar ekkert annað en hann verði gerður svo úr garði að allir, þar á meðal undirritaður, geti notfært sér þá þjónustu sem verður senn gerð gagnvirk.

Reykjavík gæti margt lært af Seltirningum, en margt á síðu borgarinnar er afleitt þótt sumt sé harla gott.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband