Jákvæð ríkisstjórnarvísa

Er ekki rétt að reyna að hnoða saman einhverju um ríkisstjórnina?

Ríkisstjórnin, rösk og góð,

ryður mörgum færar brautir.

Jóhanna er jákvæð, fróð,

jöfnuð eykur, linar þrautir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Sveinsson

Landinn hnoðar og hnoðar.

Ríkisstjórnin, ráðalaus,

ryður engum neinar brautir.

Ekkert veit hún í sinn haus,

engar mun hún lina þrautir.

Sigurður Sveinsson, 11.5.2009 kl. 07:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband