Ofurlaun þrátt fyrir stórfellt tap

Tryggvi Þór Hergbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðaustur-kjördæmi hafði áhyggjur af því á dögunum að kjör væntanlegs bankastjóra ríkisbanka yrðu lakari en þeirra tveggja banka sem verða væntanlega einkavæddir innan skamms. Þessi sami þingmaður hefur verið málsvari frjálsrar eftirspurnar. Ekki er vitað til að mikil eftirspurn sé eftir íslenskum bankastjórum og því hætt við að erfitt verði að rökstyðja himinháar launagreiðslur þeirra í landi þar sem fjármagnsskortur ríkir.

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar (Decode Genetics) hefur hins vegar haft áhyggjur af eyðslu hins opinbera og andæft gegn byggingu tónlistarhússins. Hann hefur þá reynslu að stýra fyrirtæki sem hefur tapað miklu fé og orðið að segja upp fjölda fólks. Þannig hefur sparast nokkurt fé.

viðra

Ekki er að sjá að sparnaðar hafi verið leitað í stjórnunarkostnaði hjá Íslenskri erfðagreiningu (Decode Genetics). Aðalfundur fyrirtækisins er framundan og í gögnum vegna ársuppgjörs 2008 kemur ýmislegt fróðlegt fram.

Frá árinu 2004 hefur fyrirtækið tapað um 400 milljónum Bandaríkjadala eða sem nemur tæplega 52 milljörðum íslenskra króna og í fyrra varð tapið 85 milljónir bandaríkjadala eða um 1100 milljónir íslenskra króna.

Ýmsir lykilstjórnendur, þar á meðal forstjórinn, höfðu í laun og fríðindi, t.d. með kaupréttarsamningum um 1,2 millj. dala eða um 140 millj. kr. á ári, tæpar 12 millj. á mánuði.

Þótt tapið sé umtalsvert er ekki að sjá að kreppa sé á meðal stjórnenda þar á bæ.

Lesendum er bent á að tafla yfir launakjör stjórnenda er á bls. 15 í skjali sem tengt er þessari færslu.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég hef haft mikið álit Tryggva Þór og fundist margt athyglisvert sem hann hefur lagt til málanna.  Í þessu máli er ég hins vegar alveg sammála þér Arnþór.  Ég er þeirrar skoðunar að ofurlaun séu ekki hvati í starfi, heldur öðlast launin sjálfstætt líf og það fari að verða aðal verkefni ofurlaunahafans að verja þau, en ekki að vinna gagnleg störf fyrir launagreiðandann.  Ég hef verið talsmaður þess að í bankastjórastöður eigi að ráða grandvart fullorðið fólk með reynslu úr bankarekstri og borga því 5-600 þús. kr. á mánuði, en "missa" síðan ofurlaunafólkið til erlendra keppinauta sem mér skilst að nú bíði í röðum eftir að ráða það til starfa um allan heim.  Með þessu yrði griðarlegur sparnaður í rekstri bankanna og þetta gáfaða ofurlaunafólk fengi starf við hæfi.  Ég skil ekki af hverju það að sjá um að reikna vexti og taka við greiðslu gíróseðla útheimtir eitthvað hærri launagreiðslur en t.d. kennslustörf og byggingavinna.   Talandi um Decode, voru ekki uppi hugmyndir hjá einhverri góðri ríkisstjórn um að ríkið tæki að sér 20 milljarða ábyrgð á þeim rekstri?

Gísli Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 26.7.2009 kl. 10:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband